6.1.14

Harry Potter



Textarnir á milli myndbanda eru af Wikipediu. Eins og sést eru gæði þeirra mjög misjöfn.



Byrjunin[breyta]

Bókinn byrjar á því að Galdraheimurinn er að halda upp á það að Voldemort sé fallinn, sem er vondur, kraftmikill galdramaður. Eftir að hann drap Lily Potter og James Potter, reynir Voldemort að myrða eins árs son þeirra, Harry Potter. Bölvunin snerist gegn Voldemort og eyðilagði líkama hans. Þá skildi hún eftir eldingarlaga ör á enninu á Harry. Harry er settur í fóstur hjá ættingjum sem eru muggar (ekki galdramenn), Dursley-fjölskyldunni.
Næst hefst frásögnin rétt fyrir 11 ára afmæli Harrys. Þá hafði Dursley-fjölskyldan leynt honum því að hann væri galdramaður. Rubeus Hagrid, starfsmaður Hogwartskóla, færir honum bréf um að honum hafi veitt skólavist í skólanum. Harry fréttir það hjá Hagrid að hann sé galdramaður og byrjar í skólanum mánuði síðar. Í Hogwarthraðlestinni hittir hann verðandi vini sína í fyrsta skipti, þau Ron Weasley og Hermione Granger.

Koma til Hogwart[breyta]

Nýnemar í Hogwart þurfa að láta flokka sig við komuna en flokkunarhatturinn sér um það. Harry, Ron og Hermione fara öll í Gryffindor-heimavistina á meðan aðal fjendur þeirra, Draco MalfoyCrabbe og Goyle fara í Slytherin. Jafnframt kemst Harry í Quidditch-lið heimavistar sinnar, og verður þar með yngsti leitari í meira en öld.
Stuttu eftir að skólinn hefst uppgötvast að brotist hefur verið inn í Gringott, galdrabankann. Einnig uppgötvar þríeykið í Gryffindor að hinn þríhöfða hundur Hnoðri (e. Fluffy) gætir hlera á hinni forboðnu þriðju hæð.

Grunsemdir[breyta]

Kústurinn hans Harrys var undir álögum í fyrsta Quidditch-leiknum, með þeim afleiðingum að hann hentist næstum af. Hermione trúir því að Severus Snape, sem kennir töfra- og seiðdrykkjagerð, hafi sett álög á kústinn og til að reyna beina athygli hans frá Harry og kveikti í skikkjunni hans, og það virkaði þannig að Harry náði gullnu eldingunni og vann leikinn fyrir Gryffindor.
Á jólunum fær Harry huliðsskikkju föður sína frá ónefndum aðila. Hann uppgötvar líka spegil hinstu þráar, skrýtinn spegil sem sýnir ekki bara Harry, heldur Harry umkringdan allri fjölskyldu sinni. Stuttu eftir það fær Harry að vita að Nicolas Flamel er maðurinn sem bjó til viskusteininn, stein sem gefur eilíft líf.
Harry sér Snape yfirheyra Quirrell prófessor, kennara í vörnum gegn myrku öflunum, hvernig á að komast fram hjá Hnoðra, sem samfærir Harry, Ron og Hermione að Snape sé að reyna stela steininum til að Voldemort komist aftur til valda. Þríeykið kemst að því að Hagrid „ættleiddi“ drekaegg, og stuttu seinna klaktist úr því drekaunginn Norbert. Úr því að ræktun þessarar drekategundar er bönnuð sannfæra krakkarnir Hagrid um að láta Charlie, eldri bróður Ron sem er drekahirðir, um haldið á Norbert og þannig getur hann umgengist aðra dreka. Harry og Hermione er refsað fyrir að vera úti með eftirsetu hjá Hagrid í forboðna skóginum. Harry sér hettuklædda veru drekka blóð úr særðum einhyrningiKentárinn Flórens segir Harry að þessi vera sé í rauninni Voldemort.

Viskusteinninn[breyta]

Hagrid segir Harry, Ron og Hermione hvernig á að komast framhjá Hnoðra og þau flýta sér að segja Dumbledore hvað þau vita, en hann er ekki við. Þau voru alveg viss um að Dumbledore hafi verið lokkaður út úr skólanum á meðan til að Snape gæti stolið steininum. Þríeykið ákveður að vera á undan að ná í steininn. Þau þurfa að komast framhjá mörgum galdra-hindrunum, t.d fljúgandi lyklum, risa-galdratafli og fleira. Harry er eini sem heldur áfram og finnur þar Quirrell prófessor, en ekki Snape, sem er á eftir steininum. Síðasta hindrunin er Draumaspegillinn. Quirrell neyðir Harry til að finna steininn en hann dettur í vasa hans. Voldemort, sem hafði vald á Quirrell, sýndi sig þá aftan í hnakka hans og reynir að ráðast á Harry sem sleppur. Dumbledore birtist í tæka tíð, Voldemort flýr en Quirrell deyr.

Lok bókar[breyta]

Dumbledore staðfestir fyrir Harry að móðir hans dó þegar hún reyndi að vernda Harry fyrir Voldemort, þegar hann var lítill. Ást hennar á Harry var svo sterk og hrein að hún gerði gamla galdravörn fyrir Harry á móti bölvunum Voldemort. Dumbledore útskýrir líka að viskusteinninn var eyðilagður til þess að forða framtíðarvandamálum eins og þessum. Hann segir Harry að aðeins þeir sem vildu steininn til að verja hann en ekki til að nota hann mundu ná honum úr speglinum, það er ástæðan fyrir að Harry náði steininum.
Á endanum á fyrsta ári Harrys, reynist Harry hetja og Dumbledore gefur honum fá „síðustu-mínútu-stig“ og Ron, Hermione og Neville, svo að Gryffindor vinnur heimavistarbikarinn, og þar með endar sigurganga Slytherin sem hafði unnið síðustu 6 árin

Könnun:






Harry Potter snýr aftur í Hogwarts. En Harry kemst að því að leyniklefin hafði verið opnaður. Í leyniklefanum var sagt vera hræðilegt skrímsli. Þegar vinir hans byrja að verða steingerðir reynir hann að finna út hver opnaði klefan. Þegar Harry loksins finnur klefan kemst hann að því að Voldemort opnaði klefann með hjálp Ginny, systur Rons. Harry þarf að sigra skrímslið, sem var basilíuslanga og Voldemort. Þegar hann var búinn að því bjargaði hann Ginny úr klefanum.



Könnun

8. bekkur
9. bekkur
10. bekkur

Þriðja ár





Harry Potter snýr aftur til Hogwarts en núna er morðingin Sirius Black á eftir honum. Black átti að hafa svikið foreldra Harrys og Harry langar að hefna sín. Þegar Harry loks hittir Black finnur hann út að Black sveik foreldra hans ekki heldur Peter, fyrverandi vinur Blacks. Peter nær að flýja svo Black hefur enga sönnun fyrir því að hann var ekki morðingi.

  Könnun

8. bekkur
9. bekkur
10. bekkur

Fjórða ár

Á fjórða ári sínu í Hogwarts tók Harry þátt í Þrígaldraleikunum sem voru þá haldnir í fyrsta skipti í yfir 100 ár. Hann var yngsti keppandinn og hefði í raun ekki átt að taka þátt en brögðum var beitt til að hann yrði fyrir valinu. Sá sem stóð fyrir því var yfirlýstur stuðningsmaður Voldemorts og sá hann einnig til þess að Harry stæði uppi sem sigurvegari leikanna þar sem bikarinn var leiðarlykill sem flutti hann beina leið til Voldemorts og þjóna hans. Þar var Harry notaður, gegn eigin vilja, í athöfn til að endurreisa hinn myrka herra. Eftir mikið og erfitt einvígi við Voldemort komst Harry þó heilu og höldnu heim til Hogwarts þar sem hann gat sagt frá því sem fram hafði farið um kvöldið.
Fimmta ár



Þessi saga byrjar þegar Harry og frændi hans, Dudley, verða fyrir árás vitsuga. Harry notar galdra til að losna við þær og hann er sendur í viðtal í galdramálaráðuneytinu. Það kemur fljótt í ljós að viðtalið er réttarhöld og þrátt fyrir góðar tilraunir galdramálaráðherrans, er hann sýknaður. Vegna þess að Voldemort er snúinn aftur endurvekur Dumbledore fönixregluna, leynilegt samfélag sem vinnur að því að sigra Voldemort, dráparana (fylgismenn Voldemorts) og vernda fórnarlömb Voldemorts, m.a. Harry. Þrátt fyrir að Harry hafi lýst endurkomu Voldemorts tekur galdramálaráðuneytið hann ekki alvarlega og neitar því að Voldemort hafi snúið aftur.

Sjötta ár


Harry Potter og blendingsprinsinn er sjötta og næstsíðasta bókin í bókaröð J. K. Rowling um Harry Potter. Bókin kom út 16. júlí 2005 og setti met í sölu með en hún seldi níu milljón eintök á fyrsta sólarhringnum. Metið var síðar slegið af næstu bók í bókaröðinni, Harry Potter og dauðadjásnin. Í bókinni koma fram leyndarmál Voldemorts og Albus Dumbledore er myrtur af Severus Snape. Þar kemur í ljós að Snape er drápari og þjónar hinum myrkra herra.

Sjöunda ár og áfram




Harry Potter og dauðadjásnin eftir J.K. Rowling er sjöunda og síðasta bókin í bókaseríunni sem fjallar um Harry Potter, ungling sem er í námi tilgaldramanns.