23.7.12

Rökleikni 3

Svarið er já.

Við getum vel uppfyllt öll skilyrðin og samt fengið út að a.m.k. einhver W geti verið Z.

T.d. svona:

Skilyrðin voru:  


Sum W eru Q og öfugt (sést á myndinni).
Sum W eru ekki Q og öfugt (sést á myndinni).
Ekkert Z er Q.

og svo er augljóst að sum W eru Z.

Við gætum m.a.s. útbúið þetta þannig að öll Z séu W:


En gætum við, með sömu forsendum gert þetta þannig að öll W séu Z? 

Þ.e. uppfyllt öll þessi skilyrði:

Sum W eru Q og öfugt.
Sum W eru ekki Q og öfugt.
Ekkert Z er Q.

og

Öll W eru Z.


Svaraðu og smelltu hér.